09.05.2012 22:24
Tvær fermingarmessur sunnudaginn 13. maí
Tvær fermingarmessur verða á sunnudaginn. Sú fyrri kl. 11:00 og sú síðari kl. 13:00. Kórinn á að mæta kl. 10:00 til upphitunar.
Skrifað af GHj
08.05.2012 21:22
Sumarnótt - sól á bak við tinda - Vortónleikar kórsins
Á tónleikunum mun kórinn flytja hugljúf og falleg lög frá liðinni tíð, meðal annars lög sem Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði fræg á sínum tíma, einnig lög um vorið og sumarið, ástina, sorgina og gleðina.
Nokkrir félagar í kórnum syngja einsöng og Fríkirkjubandið spilar undir að venju en það skipa þeir Guðmundur Pálsson á bassa, Skarphéðinn Hjartarson á píanó og Örn Arnarson á gítar, en sá síðast nefndi stjórnar jafnframt kórnum. Að auki leikur Gestur Pálmason á trommur með hljómsveitinni á þessum tónleikum.
Að vanda má búast við einstaklega skemmtilegri stemningu á tónleikunum. Hægt er að kaupa miða hjá kórfélögum og einnig við innganginn.
Miðaverð er 1500 kr.
Auglýsing í PDF.
Sjá einnig á Facebook.
Skrifað af GHj
18.04.2012 14:44
Æfing fellur niður 18. apríl - þrjár fermingarathafnir á Sumardaginn fyrsta
Okkar ástkæri stjórnandi ákvað að gefa okkur frí á æfingunni í kvöld, enda mikil samvera framundana á morgun, Sumardaginn fyrsta.
Mæting fyrir fyrstu fermingarathöfnina í fyrramálið er kl. 9:00. Fermt verður kl. 10, 12 og 14.
Sjáumst í sumarskapi á morgun!
Mæting fyrir fyrstu fermingarathöfnina í fyrramálið er kl. 9:00. Fermt verður kl. 10, 12 og 14.
Sjáumst í sumarskapi á morgun!
Skrifað af GHj
- 1
Flettingar í dag: 21
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 60
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 62349
Samtals gestir: 17386
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:50:48
